Þrír nýliðar eru í landsliðshóp kvenna í körfubolta sem mætir til æfinga um helgina. Á liðið að mæta til leiks í undankeppni EM í september, en enn á eftir að koma í ljós hvort leikirnir geti farið fram vegna kórónuveirunnar.
Benedikt Guðmundsson valdi 19 manna hóp þar sem eru þrír nýliðar, en Katla Rún Garðarsdóttir, Ásta Júlía Grímsdóttir og Ástrós Lena Ægisdóttir koma inn í hópinn í fyrsta skipti.
Æfingahópur landsliðsins um helgina:
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur/HBU, USA
Ástrós Lena Ægisdóttir · KR
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Kelavík/Binghamton, USA
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir · Valur/University of Tulsa, USA
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík
Eva Margrét Jónsdóttir · Haukar
Guðbjörg Sverrisdóttir · Valur
Hallveig Jónsdóttir · Valur
Hildur Björg Kjartansdóttir · KR
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Breiðablik
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar
Margrét Kara Sturludóttir · KR
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir · Keflavík
Sara Rún Hinriksdóttir · Leicester Riders, Englandi
Sóllilja Bjarnadóttir · KR
Þóra Kristín Jónsdóttir · Haukar