Elvar Már Friðriksson var valinn leikmaður nóvembermánaðar í efstu deildinni í körfuknattleik í Litháen.
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu náði lið Elvars, Siauliai, að vinna fyrstu tvo leiki sína í deildinni á tímabilinu í nóvember.
Elvar þótti fara fyrir liðinu í þessum leikjum og tölurnar hjá honum í nóvember eru ekkert slor: 18,5 stig að meðaltali og 9,5 stoðsendingar að meðaltali.
Elvar er fyrsti Íslendingurinn sem leikur í efstu deild í Litháen þar sem körfuknattleikurinn er mjög vinsæll. Hann var fljótur að stimpla sig inn og vekur greinilega athygli.
The #betsafeLKL November MVP award goes to @elvarfridriksson who led @bc.siauliai to the first 2 victories of this season ⭐️ #ShowMustGoOn pic.twitter.com/LVotSsfrFG
— Betsafe LKL (@betsafeLKL) November 30, 2020