Njarðvík fær mikinn liðsstyrk

Antonio Hester lék vel með Tindastóli.
Antonio Hester lék vel með Tindastóli. mbl.is/Árni Sæberg

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gert samning við Bandaríkjamanninn Antonio Hester og mun hann leika með liðinu út þessa leiktíð. Leikmaðurinn staðfesti tíðindin við Karfan.is.

Hester er þekkt stærð í íslenskum körfubolta en hann lék afar vel með Tindastóli frá 2016 til 2018 og varð m.a. bikarmeistari með liðinu seinna tímabilið.

Miðherjinn skoraði 22 stig og tók 9 fráköst í leik á tímabilunum tveimur hér á landi en hann hefur leikið í Sviss og á Spáni síðan hann yfirgaf Skagfirðinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert