Argentínskur bakvörður til Hauka

Haukar hafa fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig.
Haukar hafa fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig. Ljósmynd/Sigurður Ragnarsson

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við argentínska bakvörðinn Pablo Bertone um að spila með liðinu á Íslandsmótinu og verður því teflt fram tveimur nýjum leikmönnum á Ásvöllum þegar keppni hefst aftur eftir landsleikjahlé.

Bertone er 30 ára bakvörður sem hefur á undanförnum árum spilað í efstu deildum á Ítalíu og Argentínu en síðast spilaði hann með Cordoba í Argentínu, skoraði þar að meðaltali 9,2 stig í leik, tók 2,4 fráköst og gaf 1,2 stoðsendingar.

Fyrr í mánuðinum sömdu Haukar við bandaríska leikmanninn Jalen Jackson sem er ætlað að fylla skarð Earvin Morris sem meiddist í byrjun árs. Liðið hef­ur ekki farið vel af stað á tíma­bil­inu en Hauk­ar eru í tólfta og neðsta sæti deild­ar­inn­ar með 4 stig líkt og nýliðar Hatt­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert