Giannis Antetotokounmpo og Kyrie Irving fóru fyrir sínum liðum þegar Milwaukee Bucks og Brooklyn Nets mættust í hörkuleik í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Antetotokounmpo var öflugur í liði Milwaukee og náði tvöfaldri tvennu; skoraði 36 stig og tók 12 fráköst. Samherji hans Jrue Holiday var einnig með tvöfalda tvennu þegar hann skoraði 23 stig og gaf 10 stoðsendingar, auk þess að taka átta fráköst.
Í liði Brooklyn var Kyrie Irving stigahæstur með 38 stig og fimm stoðsendingar. Kevin Durant lék einnig mjög vel; skoraði 32 stig, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar.
Að lokum reyndist Milwaukee hlutskarpara og vann með sex stigum, 124:118.
Sex aðrir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt.
Öll úrslit næturinnar:
Milwaukee – Brooklyn 124:118
Cleveland – Phoenix 118:134
Detroit – Charlotte 99:102
Miami – Dallas 113:127
New Orleans – Golden State 106:103
Oklahoma – Sacramento 99:103
LA Clippers 105:100