Tryggvi Snær Hlinason og samherjar í spænska félaginu Zaragoza eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar FIBA í körfuknattleik eftir sigur á rússneska liðinu Nizhnij Novgorod í dag, 86:78.
Úrslitakeppnin fer öll fram í rússnesku borginni Nizhnij Novgorod og því afar sterkt fyrir Tryggva og félaga hans að slá heimaliðið út í átta liða úrslitunum.
Tryggvi spilaði frekar lítið í dag, aðeins í rúmar tíu mínútur og tók þrjú fráköst en skoraði ekki stig.
Zaragoza spilar í undanúrslitunum á föstudag og leikur annaðhvort við Nymburk frá Tékklandi eða Pinar Karsiyaka frá Tyrklandi sem mætast í kvöld.