Frábær í tvíframlengdum leik

Elvar Már Friðriksson gaf sautján stoðsendingar í Litháen í dag.
Elvar Már Friðriksson gaf sautján stoðsendingar í Litháen í dag. Ljósmynd/LKL

Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik fyrir Siauliai þegar liðið heimsótti Neptunas í efstu deild Litháen í körfuknattleik í dag.

Leiknum lauk með 107:106-sigri Neptunas en Elvar skoraði 15 stig, tók þrjú fráköst og gaf saután stoðsendingar á þeim tæpu 47 mínútum sem hann lék.

Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn, 78:78, en tvíframlengja þurfti leikinn til þess að skera úr um sigurvegara.

Siauliai er með tólf sigra í sjöunda sæti deildarinnar þegar ein umferð er eftir af deildarkeppninni en átta efstu liðin fara áfram í úrslitakeppnina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert