Körfuknattleiksmaðurinn Dúi Þór Jónsson hefur skrifað undir eins árs samning við Þór á Akureyri en hann var einn þeirra sem kepptu á Norðurlandamótinu með íslenska U20 árs landsliðinu í sumar.
Leikstjórnandinn tvítugi spilaði með Stjörnunni á síðustu leiktíð, skoraði að meðaltali 4,7 stig, gaf 2,3 stoðsendingar og tók 1,5 fráköst. Þórsarar segja frá félagsskiptunum á heimasíðu sinni.
Þórsarinn Júlíus Orri Ágústsson er fyrirliði U20 landsliðsins og jafnframt leikstjórnandi Akureyrarliðsins á síðustu leiktíð en hann er á leiðinni í háskóla í Bandaríkjunum þar sem hann mun spila körfubolta næsta vetur. Dúa Þór er væntanlega meðal annars ætlað að leysa hann af hólmi.