Calvin Burks mun leika með Keflavík í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á komandi keppnistímabili.
Bandaríkjamaðurinn þekkir vel til hjá félaginu eftir að hafa leikið með Keflavík í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þar sem hann var algjör lykilmaður.
Hann skoraði 18 stig, tók sex fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik en Keflavík varð deildarmeistari á síðustu leiktíð.
Til stóð að Burks myndi spila með Khimik í efstu deild Úkraínu eftir tímabilið en nú er ljóst að af því verður ekki.