Báðir úrskurðaðir í leikbann

Dwane Casey og Cade Cunningham reyna að róa Isaiah Stewart …
Dwane Casey og Cade Cunningham reyna að róa Isaiah Stewart niður eftir viðskiptin við James. AFP

LeBron James hefur verið úrskuraður í leikbann í NBA-deildinni í körfuknattleik eftir að hafa verið rekinn af velli í leik Los Angeles Lakers og Detroit Pistons.

James fékk eins leiks bann en hann gaf Isaiah Stewart olnbogaskot og fékk Stewart skurð fyrir ofan augað.

Stewart brást illa við og missti stjórn á skapinu í kjölfarið. Fyrir vikið hefur hann verið úrskurðaður í tveggja leikja bann.

LeBron James gengur af velli í Detroit.
LeBron James gengur af velli í Detroit. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert