Þóra best í naumum sigri

Þóra Kristín Jónsdóttir í landsleik. Hún var stigahæst hjá Falcon …
Þóra Kristín Jónsdóttir í landsleik. Hún var stigahæst hjá Falcon í gær. Ljósmynd/Óttar Geirsson

Danmerkurmeistarar AKS Falcon hófu titilvörn sína í danska körfuboltanum í kvennaflokki með naumum útisigri á Amager í gær, 76:75.

Þóra Kristín Jónsdóttir og Ástrós Lena Ægisdóttir urðu danskir meistarar með liðinu á síðasta tímabili og leika með því áfram.

Þóra var í aðalhlutverki hjá Falcon en hún skoraði 19 stig og átti þrjár stoðsendingar á 26 mínútum. Ástrós lék í sjö mínútur en náði ekki að skora.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert