Matthías æfir með KR

Matthías Orri Sigurðarson í leik með KR sumarið 2021.
Matthías Orri Sigurðarson í leik með KR sumarið 2021. mbl.is/Kristinn Magnússon

Matthías Orri Sigurðarson æfir um þessar mundir með uppeldisfélagi sínu KR. Hann hætti körfuknattleiksiðkun á hæsta stigi að loknu tímabilinu 2020/2021 en hefur leikið með b-liði KR í 2. deild karla á þessu tímabili.

KR hefur gengið afleitlega á tímabilinu og vermir botninn í Subway-deild karla eftir að hafa aðeins unnið einn af fyrstu tíu leikjum sínum.

Samkvæmt Vísi hefur Matthías Orri, sem er 28 ára gamall bakvörður, æft með aðalliði KR að undanförnu og því gæti endurkoma hans í efstu deild verið möguleg á næstunni.

Hann er enn skráður í Vesturbæjarfélagið og því væru félagaskipti óþörf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert