Tryggvi stóð enn og aftur fyrir sínu

Tryggvi Snær Hlinason lék vel í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason lék vel í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik fyrir Zaragoza er liðið mátti þola 79:91-tap á útivelli gegn Baskonia í efstu deild Spánar í körfubolta í kvöld.

Miðherjinn stóri skoraði 12 stig, tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu á 27 mínútum. Var hann með næstflest stig Zaragoza-manna.

Zaragoza er í 14. sæti deildarinnar af 18 liðum með tíu stig eftir 19 leiki. Tryggvi hefur staðið mjög vel fyrir sínu á leiktíðinni og verið einn besti leikmaður Zaragoza. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert