Rytas vann sannfærandi 118:73-heimasigur á Pieno Zvaigzdes í efstu deild Litháens í körfubolta í dag.
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson fann sig vel hjá Rytas og skilaði huggulegri tvennu. Skoraði Elvar 14 stig, gaf tíu stoðsendingar og tók eitt frákast á 21 mínútu á gólfinu.
Rytas er í öðru sæti deildarinnar með 19 sigra og fimm töp eftir 24 leiki. Zalgiris Kaunas er með 20 sigra í jafnmörgum leikjum.