Bankarnir sameina seðlaverin

Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að veita Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum undanþágu til stofnunar og reksturs sameiginlegs seðlavers gegn tilteknum skilyrðum sem bankarnir hafa skuldbundið sig að fara eftir.

Samkeppniseftirlitið greinir frá þessu í tilkynningu sem send var á fjölmiðla. Starfsemi seðlavers felst í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða, telja og skrá reiðufé, varðveita það, dreifa því til baka til útibúa, hraðbanka og annarra starfsstöðva og koma því, eftir atvikum, til geymslu í Seðlabankanum.

„Megin rökin fyrir stofnun og rekstri sameiginlegs seðlavers felast í því að samrekstur á þessu sviði getur leitt til töluverðs kostnaðarsparnaðar samanborið við að reka hvert seðlaver með aðskildum hætti hjá hverjum banka fyrir sig. Jafnframt gæti sameiginlegt seðlaver verið betur í stakk búið til að uppfylla öryggiskröfur,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins. 

Þá kemur fram að skilyrðum sáttarinnar sé meðal annars ætlað að tryggja að sameiginlegt seðlaver verði rekið með sjálfstæðum hætti, tryggja jafnt aðgengi allra bærra aðila að hinu sameiginlega félagi, tryggja að verðlagning félagsins miðist eingöngu við þörfina fyrir að viðhalda starfseminni, vinna gegn því að starfsemi félagsins skerði samkeppni á milli eigenda seðlaversins á markaði fyrir almenna viðskiptabankaþjónustu og tryggja að sú hagræðing sem leiðir af samrekstrinum viðhaldist til framtíðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK