Laun stjórnar Arion banka hækka

Arion banki.
Arion banki. mbl.is/Eggert

Laun stjórnarmanna í Arion banka voru hækkuð um 6,8% á aðalfundi bankans í dag. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að hækkunin sé í samræmi við þróun launavísitölu.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem ársreikningur bankans var samþykktur.

Tillaga stjórnar um að greiða ekki út arð var samþykkt en stjórn bankans hefur víðtæka heimild til að leggja fram tillögu um arðgreiðslu eða aðra ráðstöfun eigin fjár og því mun stjórnin mögulega boða til aukahluthafafundar fram að næsta aðalfundi, þar sem tillaga um slíka ráðstöfun yrði lögð fyrir.

Fram kom að stjórn Arion banka hafi tekið til ítarlegrar skoðunar þann möguleika að arðgreiðsla færi fram með hlutabréfum, þ.e. hlutabréfum í Valitor Holding, en að stjórnin væri þeirrar skoðunar að slíkt þarfnaðist ítarlegra mats.

Á fundinum voru eftirfarandi endurkjörnir í stjórn bankans: Brynjólfur Bjarnason, Eva Cederbalk, Jakob Már Ásmundsson, John P. Madden, Måns Höglund og Steinunn Kristín Þórðardóttir. Jafnframt var Herdís Dröfn Fjeldsted kjörin ný í stjórn bankans en Kirstín Th. Flygenring og Þóra Hallgrímsdóttir hætta í stjórninni. Steinunn er tilnefnd af Attestor Capital, aðrir eru tilnefndir af Kaupskilum.

Varamenn í stjórn bankans voru einnig endurkjörnir. Varamenn eru: Ólafur Örn Svansson, Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir og Þórarinn Þorgeirsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK