Afkoma borgarinnar milljörðum umfram áætlun

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Ómar Óskarsson

Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var jákvæð um 4.971 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 1.789 milljónir á árinu. Niðurstaðan er því um 3.182 milljónum betri en gert var ráð fyrir.

Í tilkynningu um uppgjörið er betri rekstrarniðurstaða sögð skýrast af hærri skatttekjum, hærri framlögum Jöfnunarsjóðs og hærri tekjum af sölu byggingarréttar og söluhagnaði fasteigna. Á móti komi hærri gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga og gjaldfærsla vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 28.027 milljónir króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 14.559 milljónir. Munurinn þar á milli er 13.468 milljónir króna. Helstu ástæður fyrir betri afkomu má rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða hf. og lægri fjármagnsgjalda samstæðunnar vegna gangvirðisbreytinga innbyggðra afleiða í raforkusamningum hjá Orkuveitu Reykjavíkur. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í árslok 582.734 milljónum króna. Heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 297.306 milljónir og eigið fé var 285.428 milljónir en þar af var hlutdeild meðeigenda 15.304 milljónir. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar fer hækkandi og er nú 49,0% en var 45,8% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK