Núverandi og fyrrverandi stjórnendur bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins CBS seldu hlutabréf í félaginu áður en ásakanir á hendur þáverandi forstjóra CBS, Leslie Moonves, um kynferðislegt ofbeldi voru birtar opinberlega. Þetta kemur fram í stefnu á hendur þeim, samkvæmt frétt Wall Street Journal.
Samkvæmt frétt blaðsins var stefnan gefin út á mánudag og eru það hluthafar í CSB sem hafa óskað eftir því við dómara að þeir fái heimild til hópmálsóknar.
Stjórnendur CBS sem eru nafngreindir eru: Moonves, sem lét af störfum í september, starfandi forstjóri, Joe Ianniello, yfirmaður reikningshalds, Lawrence Liding og fyrirverandi yfirmaður samskiptamála, Gil Schwartz.
Í stefnunni er því haldið fram að fjórmenningarnir hafi selt yfir 3,4 milljónir hluta sem metnir eru á meira en 200 milljónir Bandaríkjadala, yfir 24 milljarða króna, áður en CBS tilkynnti í júlí um að rannsókn færi fram á ásökunum um að Moonves hafi beitt konur kynferðislegri áreitni.
Fram kemur í stefnunni að tímasetning og hversu stór hlutur var seldur veki grunsemdir. Moonves seldi hlutabréf sem metin voru á 155,3 milljónir dala frá júní 2017 til maí 2018, á tíma sem CBS vissi af rannsóknarblaðamönnum sem voru að skoða ásakanir á hendur honum. WSJ segir að CBS og Moonves neiti þessu.