Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, fær 42 milljarða í tengslum við arðgreiðslur frá fjarskiptafélaginu WOM í Chile og sölu hlutafjár í pólska fjarskiptafélaginu Play. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.
Þar kemur fram að Novator er að koma á fót fjarskiptafélagi í Kólumbíu. Novator vann útboð í desember um úthlutun á vissum tíðnisviðum á farsímaneti í Kólumbíu. Novator greiðir 257 milljónir dollara, sem svarar til 32 milljarða króna, og þarf að sjá fyrir fjarskiptasambandi á 674 stöðum í landinu, sem á að mynda grunn að stofnun félagsins.
WOM gekk frá fjármögnun á 250 milljóna dollara, um 30 milljarða króna, arðgreiðslu til Novator í desember. Þá seldi Novator ríflega 4% hlut í pólska fjarskiptafélaginu Play fyrir um 12 milljarða króna í september.