Verslunum og skrifstofum Apple verður lokað á meginlandi Kína til 9. febrúar vegna kórónaveirunnar.
„Hugur okkar er hjá fólkinu sem hefur lent í veirunni og þeim sem vinna dag og nótt við að reyna að hafa hemil á henni,“ sagði í yfirlýsingu frá Apple.
Verslanir Apple á netinu verða áfram starfræktar en fyrirtækið mun fylgjast náið með stöðu mála.
Þriðji stærsti neytendahópur Apple á heimsvísu er í Kína.