Sigríður Theódóra Pétursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Brandenburg.
Sigríður útskrifaðist með BA-próf í íslensku og MA-gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands. Þá lauk hún sérhæfðu meistaraprófi í markaðslegri stjórnun og samskiptum frá Toulouse Business School. Sigríður hefur starfað sem viðskiptastjóri á Brandenburg í um sex ár ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn stofunnar síðustu ár. Hún hefur unnið við stefnumótun og markaðsráðgjöf fyrir mörg af helstu vörumerkjum landsins, á borð við Nova, Íslandsbanka, Sorpu og Krabbameinsfélagið.
„Þetta er mikill heiður og skemmtileg áskorun. Það eru spennandi tímar núna á síbreytilegum auglýsingamarkaði og mikilvægt að Brandenburg verði áfram leiðandi á þeim markaði,“ er haft eftir Sigríði Theódóru í tilkynningu.
Ragnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Brandenburg, segir stór og krefjandi verkefni framundan hjá stofunni og því sé það mikill styrkur fyrir Brandenburg að hafa Sigríði Theódóru í framlínunni.
Brandenburg auglýsingastofa var stofnuð árið 2012 og eru starfsmenn um þrjátíu. Stofan hefur hlotið fjölda verðlauna og var kosin auglýsingastofa ársins síðustu 3 árin af íslensku markaðsfólki.