Guðmundur ákærður fyrir 300 milljóna skilasvik

Meðal þeirra eigna sem Guðmundur er ákærður fyrir að reyna …
Meðal þeirra eigna sem Guðmundur er ákærður fyrir að reyna að koma undan eru tvær íbúðir í Plaza-byggingunni í New York, en hún er við Central Park-almenningsgarðinn og stutt frá Trump Tower. Skjáskot/Google

Guðmundur A. Birgisson, bóndi og fjárfestir sem jafnan er kenndur við bæinn Núpa í Ölfusi, hefur verið ákærður af embætti héraðssaksóknara fyrir skilasvik og peningaþvætti í tengslum við eigið gjaldþrot árið 2014. Hélt hann frá skiptastjóra fasteignum sínum á Spáni, Flórída og í New York. Nemur heildarupphæð skilasvikanna sem hann er ákærður fyrir um 300 milljónum.

Guðmundur var úrskurðaður gjaldþrota í lok árs 2013. Hafði hann þar áður verið mjög um­svifa­mik­ill í ís­lensku at­vinnu­lífi og var hann meðal ann­ars hlut­hafi í Slát­ur­fé­lagi Suður­lands, HB Granda, Hót­el Borg og fleiri fé­lög­um. Þá var hann einn af for­ystu­mönn­um fé­lags­ins Lífs­vals, sem keypti jarðir um allt land á ár­un­um fyr­ir hrun. Fé­lagið komst seinna í eigu Hamla, dótt­ur­fé­lags Lands­bank­ans.

Guðmundur er ákærður fyrir að hafa við gjaldþrotið haldið frá skiptastjóra fjölda eigna sinna sem honum bar að upplýsa um. Jafnframt að hafa veitt villandi eða rangar upplýsingar um eignarhaldið þegar skiptastjóri óskaði þeirra. Hann er einnig ákærður fyrir að ráðstafa eignunum, arði af þeim eða andvirði í sína þágu.

Fasteignir á Spáni og Flórída og tvær íbúðir við Central Park

Þrotabúið fékk viðurkenningu gjaldþrotaskiptanna í Bandaríkjunum í júlí árið 2015 og komst þannig yfir eignir Guðmundar erlendis. Við sölu þeirra fengust 293,9 milljónir, auk þess sem hann hafði fengið arð upp á 70.647 Bandaríkjadali vegna fjárfestinga í Banadríkjunum á árunum 2014 og 2015.

Guðmundur var beinn eigandi fasteignar í Alicante á Spáni, en félag í hans eigu var eigandi fasteignarinnar í Naples í Flórída í Bandaríkjunum. Hafði Guðmundur áður verið eigandi hennar, en afsalað sér eigninni til félagsins Palm Tree Associates LLC (sem áður hét Gummi Associates LLC) og var í eigu Guðmundar. Þá átti Palm Tree, í gegnum félagið Gummi Bear Associates Realty Company LLC, allt að 75%, en minnst helmingshlut, í tveimur íbúðum í svonefndri Plaza-byggingu á Manhattan í New York í Bandaríkjunum. Stendur byggingin við Central Park, í næsta nágrenni við the Ritz Carlton Central Park-hótelið og Trump Tower.

Fram kemur í ákærunni að Guðmundur hafi ekki upplýst um eignarhald sitt á fyrrgreindum eignum í skýrslutöku hjá skiptastjóra í byrjun árs 2014. Þá hafi hann veitt rangar eða villandi upplýsingar um þær í tölvupósti til skiptastjóra árið 2015, en spurt var sérstaklega um „íbúð í Naples Flórída“, „íbúðir í Plaza hótel New York“ og „hús á Spáni“.

Reyndi að koma eignunum undan

Er Guðmundur sagður hafa ráðstafað eignunum eftir gjaldþrotið í því augnamiði að koma þeim undan. Afsalaði hann meðal annars eigninni í Flórída til félagsins Painted Pelican LLC sem var stofnað árið 2014 og Guðmundur var einnig raunverulegur eigandi að. Þá gerði hann einnig tilraun til nafnabreytingar og breytingar á gildandi félagssamþykktum Gummi Bear Associates Realty Company árið 2015. Segir í ákærunni að þær breytingar hafi efnislega falið í sér að rýra eða girða fyrir möguleika og úrræði þrotabúsins, í gegnum yfirvofandi yfirtöku þess á Palm Tree Associates, til að hafa áhrif á eða ráðstafa eignunum.

Þegar þrotabúið komst yfir eignir Guðmundar voru þær seldar. Að frádregnum áhvílandi skuldum, gjöldum og kostnaði, fengust samtals 286,6 milljónir fyrir fasteignirnar.

Listaverk og bandarískur fjárfestingasjóður

Guðmundur er einnig ákærður fyrir að hafa ekki upplýst um eign sína á listaverki eftir hollenska listmálarann Corneille, en hann svaraði skiptastjóra því neitandi í skriflegu svari í febrúar 2015 hvort hann ætti erlenda bankareikninga og gaf ekkert upp um verðmætt lausafé í sinni eigu. Stuttu áður hafði Guðmundur hins vegar fengið verðtillögu frá uppboðshúsinu Christie‘s í Amsterdam upp á 25-35 þúsund evrur og vilyrði fyrir að bjóða verkið upp. Seldist það síðar á 22 þúsund evrur. Eftir kostnað fékk hann greiddar sem svarar tæplega þremur milljónum króna inn á reikning sinn í Bank of America, en fram kemur að frekari ráðstöfun fjárins sé ókunn.

Að lokum er Guðmundur ákærður fyrir að hafa ekki gefið upp eign Palm Tree Associates í bandarískum fjárfestingasjóði. Var eignin, miðað við upphaflegt eiginfjárframlag árið 2006, að fjárhæð 200 þúsund Bandaríkjadalir. Var hann áður skráður fyrir eigninni í eigin nafni en flutti hana yfir á Gumma Associates árið 2009. Af þessari verðbréfaeign var reglulega greiddur út arður með ávísunum til Gummi Associates á árunum 2014 og 2015, samtals 88.500 dalir. Taldi Guðmundur þessar upphæðir fram sem arðgreiðslur félagsins á bandarískum skattaskýrslum. Innleysti Guðmundur samtals 70.647 dali af bankareikningi félagsins eftir að hann var úrskurðaður gjaldþrota og þar til þrotabúið komst yfir eignirnar.

Guðmundur var ann­ar um­sjón­ar­manna minn­ing­ar­sjóðs auðkon­unn­ar Sonju Zorrilla, en hún lést árið 2002 og er talið að eign­ir henn­ar hafi numið um tíu millj­örðum króna. Efnaðist hún vel á fjár­fest­ing­um á Wall Street, en sjóður­inn átti að styrkja lang­veik börn á Íslandi og í Banda­ríkj­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK