Norska félagið Fredensborg AS hefur eignast meira en níu af hverjum tíu hlutum í Heimavöllum og hefur farið fram á að aðrir hluthafar sæti innlausn á hlutum sínum. Þetta kemur fram í auglýsingu í Morgunblaðinu í dag.
Stjórn Fredensborg hefur ákveðið að innlausnarverð verði 1,5 króna á hlut sem er sama verð og boðið var í yfirtökutilboði sem rann út 15. júní. Alls á Fredensborg ICE ehf. 99,45% af hlutafé í Heimavöllum hf.
Innlausnarferlið hefst í dag, mánudaginn 17. ágúst 2020 og lýkur mánudaginn 14. september 2020.