Málstofan Hvert fer álið og hvaðan koma ávextirnir? verður haldið í dag, á alþjóðadegi viðskiptalífsins 2021. Klukkan 09 hefjast umræður í málstofunni með ávarpi utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur.
Því næst flytur Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, erindi áður en Baldvin Björn Haraldsson, formaður Alþjóðaviðskiptaráðanna, lýkur umræðunum með erindi sínu.
Fylgjast má með viðburðinum í opnu streymi í spilaranum hér að neðan.