Samherji hefur undirritað lóðaleigusamning við Dalvíkurbyggð um 23.000 fermetra lóð undir nýtt húsnæði fyrir landvinnslu félagsins á Dalvík.
Fram kom í ræðu Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, nú rétt fyrir klukkan sjö að með þessu væri tekið stórt skref í átt að nýrri og fullkomnari vinnslu á Dalvík.
Dalvíkurbyggð hefði þá í nokkurn tíma unnið að hugmyndum að endurbótum á hafnarsvæðinu, meðal annars til að mæta mikilli fjölgun ferðamanna og tengdri starfsemi.
Með því að flytja starfsemi Samherja á hafnarsvæðið skapist möguleikar fyrir bæjarfélagið til að skipuleggja svæðið allt með öðrum hætti, til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.
Samningurinn handsalaður. F.v.: Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja; Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja; Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar; Heiða Hilmarsdóttir, forseti sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, formaður byggðaráðs Dalvíkurbyggðar.
Ljósmynd/Margrét Víkingsdóttir
Áætluð fjárfesting í húsnæði og búnaði eru um 3.500 milljónir króna, en fyrirtækið lætur það ekki duga. Í gærdag tók Samherji á móti nýjum Björgúlfi EA í Tyrklandi, en nýja skipið mun leysa 40 ára gamlan nafna sinn af hólmi. Áætlað er að Björgúlfur komi til heimahafnar á Dalvík í byrjun júní.
Starfsemi Samherja verður flutt á hafnarsvæðið.
Tölvuteikning/Samherji
Áætluð fjárfesting í húsnæði og búnaði eru um 3.500 milljónir króna.
Tölvuteikning/Samherji