Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði hefur verið rýmd vegna snjóflóðahættu. Þegar skilaboðin um rýminguna bárust var löndun á kolmunna úr Margréti EA nýhafin og verið var að hefja vinnslu á aflanum.
Lögreglan hafði samband við Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóra um klukkan 21 í gærkvöldi og tilkynnti honum að rýma ætti svæðið undir Strandartindi, þar sem verksmiðjan stendur, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
„Það gekk fljótt að rýma verksmiðjuna en heldur lengri tíma tók að aftengja löndunarbúnaðinn en ég fór síðastur af svæðinu klukkan rúmlega 10. Þegar löndun var hætt færði kolmunnaskipið sig á aðra bryggju,“ segir Gunnar.
Fundað var á Veðurstofu Íslands um snjóflóðahættuna í morgun og gert er ráð fyrir að fundað verði aftur um málið um hádegisbil í dag.
„Rigningin sem nú er hérna er meiri en gert hafði verið ráð fyrir og í fjöllunum er þykkt snjóteppi þannig að óttast er að blautflóð geti farið af stað. Ég kannast ekki við að snjóflóð hafi fallið á það svæði sem verksmiðjan stendur á en slík flóð hafa fallið sitt hvoru megin við það svæði. Ég er hræddur um að okkur verði ekki hleypt inn á verksmiðjusvæðið í dag en það mun sjálfsagt skýrast þegar líður á daginn.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 607,53 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 382,51 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 278,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 305,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 607,53 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 382,51 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 278,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 305,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |