Fiskeldisfyrirtæki sem tilheyra Landssambandi fiskeldisstöðva hafa ákveðið að ganga sameiginlega til liðs við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi.
Ákvörðun þessi var samþykkt á auka aðalfundi sambandsins 14. desember en jafnframt var ákveðið að leggja niður daglega starfsemi sambandsins. Mun henni framvegis verða sinnt af SFS, að því er fram kemur í tilkynningu.
Segir þar að fiskeldi hér á landi hafi aukist á undanförnum árum og að verkefni Landssambandsins hafi þar með orðið fleiri og fjölþættari. Það sé mat stjórnar Landssambandsins að þeim verkefnum verði betur sinnt innan vébanda Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
„Það hefur verið mikil uppbygging í fiskeldi á undanförnum árum og verkefnin sem þarf að leysa úr eru orðin umfangsmeiri og kannski að sumu leyti flóknari en áður. Ég tel þetta því rökrétt skref í þróun samtakanna og fiskeldis á Íslandi, að verða hluti af samtökum sem byggjast á gömlum grunni,“ er haft eftir Einari K. Guðfinnssyni, formanni stjórnar Landssambands fiskeldisstöðva.
„Laxeldi hefur alla burði til þess að verða undirstöðuatvinnugrein á Íslandi á sama hátt og sjávarútvegurinn hefur verið um langt skeið og verða þar með enn ein stoðin undir efnahagslegri hagsæld Íslendinga. Að því munum við vinna.“
Jens Garðar Helgason, stjórnarformaður SFS, segist fagna komu fiskeldis í samtökin. Nokkur fyrirtæki í fiskeldi hafi um alllangt skeið verið félagsmenn í SFS og styrkur sé að því að fjölga þeim.
„Ég hlakka til samstarfsins og hlýt að fagna komu þeirra. Það mun bæði styrkja SFS og ekki síður það góða starf sem unnið hefur verið á vegum Landssambandsins á undanförnum árum. Næstu vikur og mánuðir fara í að samþætta starfsemina undir hatti SFS og ég vonast til þess að þeirri vinnu verði lokið fyrir sumarið.“
Greint er frá því að ákveðið hafi verið að Einar K. Guðfinnsson verði hluti af teymi SFS og sinni þar verkefnum er snúa að fiskeldismálum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Geir ÞH 150 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 20.939 kg |
Skarkoli | 505 kg |
Þorskur | 191 kg |
Steinbítur | 30 kg |
Samtals | 21.665 kg |
18.9.24 Bárður SH 81 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 4.702 kg |
Þorskur | 3.032 kg |
Langlúra | 147 kg |
Ufsi | 60 kg |
Karfi | 44 kg |
Sandkoli | 41 kg |
Samtals | 8.026 kg |
18.9.24 Egill ÍS 77 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.556 kg |
Skarkoli | 2.602 kg |
Ýsa | 2.186 kg |
Steinbítur | 196 kg |
Sandkoli | 95 kg |
Samtals | 9.635 kg |