Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) lýsir yfir ánægju sinni með þá ákvörðun stjórnar Gildis lífeyrissjóðs að selja hlutabréf lífeyrissjóðsins í Brimi hf., sem áður hét HB Grandi, og þakkar Gildi fyrir að taka þessa ákvörðun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SVG.
Einnig kemur fram í tilkynningunni að Einar H. Harðarson formaður SVG hafi lagt fram tillögu um að Gildi ætti að selja öll hlutabréf sín í HB Granda/Brimi á sjóðsfélagafundi lífeyrissjóðsins í nóvember síðastliðnum.
Sú tillaga var rökstudd með því að Guðmundur Kristjánsson, forstjóri og stærsti hluthafi sjávarútvegsfyrirtækisins, hefði með ákvörðunum síðastliðin misseri „leynt og ljóst grafið undan stöðu sjómanna í landinu og unnið gegn hagsmunum þeirra“.
Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar og staðgengill framkvæmdastjóra Gildis lífeyrissjóðs, ræddi söluna í Morgunblaðinu í gær, en um var að ræða 8,49% hlut í Brimi, sem seldur var til FISK Seafood. Ákvörðunin var tekin í kjölfar kaupa Brims á sölufélögum í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur, sem er í eigu forstjóra Brims.
„Þetta voru ekki fyrstu viðskipti Brims við tengdan aðila, og okkur fannst þetta vera orðin helst til umfangsmikil viðskipti við félag í eigu forstjórans og stærsta hluthafans. Það sem miklu máli skiptir í þessu tilfelli er hvað kaupin á sölufélögunum leiða til mikillar aukningar á hlut Útgerðarfélags Reykjavíkur í félaginu, og þar með til þrenginga á eignarhaldi Brims, sem olli okkur áhyggjum,“ sagði Davíð.
Gildi á áfram 0,2% hlut í Brimi eftir söluna.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 558,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 208,37 kr/kg |
19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.380 kg |
Samtals | 7.380 kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 558,73 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,96 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 332,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 217,26 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 221,12 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 234,41 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 208,37 kr/kg |
19.3.24 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.380 kg |
Samtals | 7.380 kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |