Segja Jóhannes hafa flækt Samherja í ólögmæt viðskipti

Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja í Namibíu.
Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja í Namibíu. Skjáskot/Kveikur

„Það voru okkur mikil vonbrigði að komast að því að Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Samherjafélaganna í Namibíu, virðist hafa tekið þátt í gagnrýniverðum viðskiptaháttum og hugsanlega flækt Samherja í viðskipti sem kunna að vera ólögmæt.“

Þetta segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í yfirlýsingu fyrirtækisins vegna umfjöllunar Kveiks og Stundarinnar um umsvif Samherja í Namibíu.

Þar er Samherji m.a. sagður hafa greitt hundruð millj­ón­a í mút­ur til ein­stak­linga tengd­um sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Namib­íu til að tryggja aðgang að veiðikvóta þar í landi, en það var Jóhannes sem afhenti Wikileaks yfir 30.000 skjöl í tengslum við starfsemina, sem nú hafa verið birt á vef Wikileaks.

Í yfirlýsingu Samherja segir að Jóhannesi hafi verið sagt upp störfum á árinu 2016 eftir að hann misfór með fé og hegðaði sér með óforsvaranlegum hætti.

Samherji hafi ekkert að fela

„Okkur er illa brugðið. Ekki einungis við það að Jóhannes staðhæfi að hann hafi tekið þátt í starfsemi af því tagi sem hann lýsir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásökunum sínum að fyrrum samstarfsfólki sínu hjá Samherja. Þetta eru ekki vinnubrögð sem við könnumst við,“ segir Þorsteinn Már.

Þá er ítrekað að Samherji hafi ráðið alþjóðlegu lögmannsstofuna Wikborg Rein í Noregi til að rannsaka starfsemina í Namibíu. „Samherji mun, hér eftir sem hingað til, starfa með hlutaðeigandi stjórnvöldum sem kunna að rannsaka umrædd viðskipti í namibískum sjávarútvegi. Ef slík rannsókn mun eiga sér stað hefur Samherji ekkert að fela. “

Yfirlýsing Samherja í heild sinni:

„Það voru okkur mikil vonbrigði að komast að því að Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Samherjafélaganna í Namibíu, virðist hafa tekið þátt í gagnrýniverðum viðskiptaháttum og hugsanlega flækt Samherja í viðskipti sem kunna að vera ólögmæt,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, eftir þátt Ríkisútvarpsins þar sem margvíslegar ásakanir komu fram á hendur fyrirtækinu.

Jóhannesi Stefánssyni var sagt upp störfum á árinu 2016 eftir að hann misfór með fé og hegðaði sér með óforsvaranlegum hætti. Nú hefur hann viðurkennt að hafa tekið þátt í ólöglegri starfsemi á meðan hann stýrði dótturfélögum Samherja í Namibíu.

Þar til nýlega höfðum við enga vitneskju um umfang og eðli þeirra viðskiptahátta sem Jóhannes stundaði og óvíst er hvort þeir hafi verið raunverulega með þeim hætti sem hann lýsir. Eins og við höfum þegar greint frá höfum við ráðið alþjóðlegu lögmannsstofuna Wikborg Rein í Noregi til að rannsaka starfsemina í Namibíu. Í þeirri rannsókn verður ekkert undanskilið og munum við upplýsa um niðurstöður hennar þegar þær liggja fyrir.

„Okkur er illa brugðið. Ekki einungis við það að Jóhannes staðhæfi að hann hafi tekið þátt í starfsemi af því tagi sem hann lýsir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásökunum sínum að fyrrum samstarfsfólki sínu hjá Samherja. Þetta eru ekki vinnubrögð sem við könnumst við,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Samherji hefur 35 ára farsæla viðskiptasögu víða um heim. Við höfum ávallt lagt okkur fram við um að starfa í samræmi við lög og reglur á hverjum stað. Samherji mun, hér eftir sem hingað til, starfa með hlutaðeigandi stjórnvöldum sem kunna að rannsaka umrædd viðskipti í namibískum sjávarútvegi. Ef slík rannsókn mun eiga sér stað hefur Samherji ekkert að fela.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Gunnþór ÞH 75 Grásleppunet
Þorskur 133 kg
Ufsi 19 kg
Samtals 152 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 266 kg
Steinbítur 10 kg
Þorskur 6 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 285 kg
26.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grásleppa 594 kg
Samtals 594 kg
26.4.24 Jón Hildiberg RE 60 Grásleppunet
Grásleppa 713 kg
Þorskur 47 kg
Steinbítur 2 kg
Sandkoli 1 kg
Samtals 763 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Gunnþór ÞH 75 Grásleppunet
Þorskur 133 kg
Ufsi 19 kg
Samtals 152 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 266 kg
Steinbítur 10 kg
Þorskur 6 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 285 kg
26.4.24 Goði SU 62 Grásleppunet
Grásleppa 594 kg
Samtals 594 kg
26.4.24 Jón Hildiberg RE 60 Grásleppunet
Grásleppa 713 kg
Þorskur 47 kg
Steinbítur 2 kg
Sandkoli 1 kg
Samtals 763 kg

Skoða allar landanir »