Árnar of langt frá laxeldinu

Laxeldiskvíar í Reyðarfirði.
Laxeldiskvíar í Reyðarfirði.

Hæstiréttur hefur staðfest frávísun héraðsdóms á máli sem málsóknarfélagið Náttúruvernd 2 höfðaði á hendur Matvælastofnun og Löxum fiskeldi ehf. til ógildingar á rekstrarleyfi sem Fiskistofa hafði veitt fyrirtækinu til reksturs sjókvíaeldis á laxi í Reyðarfirði.

Að málsóknarfélaginu stóðu Veiðifélag Hofsár og Sunnudalsár, Veiðifélag Selár, Veiðifélag Breiðdæla og Veiðifélag Vesturdalsár

Í dómi réttarins kemur fram að í ljósi markmiða laga um lax- og silungsveiði, og að því gættu að veiðiréttarhöfum væri skylt að hafa með sér félagsskap í því skyni að markmiðunum yrði náð, yrði að leggja til grundvallar að veiðifélög gætu í skjóli umboðs sótt fyrir dómstólum kröfur sem lytu að veiðirétti félagsmanna sinna og þeir hefðu lögvarða hagsmuni af að fá úrlausn dómstóla um.

Ekki aðilar að stjórnsýslumáli um útgáfu leyfisins

Í dóminum var hins vegar vísað til þess að hvorki félagsmenn í veiðifélögunum né félögin sem slík hefðu átt aðild að stjórnsýslumáli um útgáfu umrædds rekstrarleyfis. Réttur málsóknarfélagsins til að bera undir dómstóla hvort farið hefði verið að lögum við útgáfu rekstrarleyfisins yrði því ekki reistur á aðild þeirra að stjórnsýslumálinu.

Þá taldi rétturinn að félagið gæti ekki reist heimild sína til höfðunar máls til ógildingar á umræddu starfsleyfi á reglum grenndarréttar, sökum þess hversu langt þær laxveiðiár sem um ræddi í málinu væru frá sjókvíaeldinu í Reyðarfirði.

Loks kom fram að til þess að fullnægt væri skilyrðum um lögvarða hagsmuni, samkvæmt lögum um meðferð einkamála, yrði málsóknarfélagið að sýna fram á eða gera líklegt að félagsmenn þess hefðu orðið fyrir tjóni vegna umræddrar starfsemi. Það hefði félagið ekki gert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »