Álag á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur aukist síðustu daga og fjölmargar tilkynningar borist um veikindi sjófarenda. Áhafnir gæta fyllstu varúðar og eru varar um sig ef vart verður við veikindi um borð í skipum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Varðstjórar hafa því verið milliliðir við hafnir, sóttvarnalækni, lögreglu og heilbrigðisyfirvöld á hverjum stað og leiðbeint áhöfnum báta og skipa vegna slíkra mála.
Landhelgisgæslan segir afar jákvætt að skipverjar séu á varðbergi ef grunur er um smit um borð. Varðstjórar stjórnstöðvar hafa staðið frammi fyrir ýmsum nýjum áskorunum sem krefjast aukins samstarf við fjölmarga aðila og hefur samstarfið verið til fyrirmyndar.
Varðskipin Þór og Týr eru bæði við eftirlit á hafinu. Ferðir varðskipanna voru lengdar í síðasta mánuði úr þremur vikum í fimm. Úthald Týs hefur til að mynda staðið yfir í mánuð og lýkur ekki fyrr en í næstu viku en þá hefur varðskipið Þór verið í tvær vikur á sjó.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar náði í möguleg COVID-19-sýni til Vestmannaeyja um síðustu helgi og áhafnir loftfara Landhelgisgæslunnar eru til taks ef flytja þarf COVID-19-smitaða á sjúkrahús í Reykjavík.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 156 kg |
Ýsa | 96 kg |
Hlýri | 57 kg |
Steinbítur | 23 kg |
Keila | 10 kg |
Samtals | 342 kg |
18.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.401 kg |
Ýsa | 2.351 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 6.768 kg |
18.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 461 kg |
Ýsa | 181 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Hlýri | 29 kg |
Keila | 8 kg |
Samtals | 716 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,35 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 245,22 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 221,87 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,09 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
18.9.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 156 kg |
Ýsa | 96 kg |
Hlýri | 57 kg |
Steinbítur | 23 kg |
Keila | 10 kg |
Samtals | 342 kg |
18.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 4.401 kg |
Ýsa | 2.351 kg |
Steinbítur | 13 kg |
Hlýri | 3 kg |
Samtals | 6.768 kg |
18.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 461 kg |
Ýsa | 181 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Hlýri | 29 kg |
Keila | 8 kg |
Samtals | 716 kg |