Langaði í stríð við Samkeppniseftirlitið

Guðmundur Kristjánsson.
Guðmundur Kristjánsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmundur Kristjánsson, sem lét í síðustu viku af störfum sem forstjóri Brims hf. segist einfaldlega hafa orðið þreyttur á afskiptum Samkeppniseftirlitsins á félaginu. Greint var frá því í gær að eftirlitið hefði ákveðið að hefja rannsókn er snýr að yfirráðum Guðmunds og tengdra aðila yfir félaginu.

Guðmundur er meiri­hluta­eig­andi Útgerðarfé­lags Reykja­vík­ur, sem er stærsti eig­andi Brims.

Áður hafði Samkeppniseftirlitið til­kynnt Brim að það muni ekki gera at­huga­semd­ir við kaup fé­lags­ins á tveim­ur fé­lög­um í Hafnar­f­irði.

Guðmundur sagði í Kastljósi í kvöld að hann gæti ekkert gert á Íslandi af því að Samkeppniseftirlitið fylgdist stöðugt með honum. Því teldi hann besti fyrir félagið, starfsfólk og hluthafa að stíga til hliðar.

„Mig langaði ekki til þess,“ sagði Guðmundur, sem mun áfram sitja í stjórn Brim og er stærsti eigandi félagsins. 

Guðmundur sagði að sér þætti furðulegur sá vilji Samkeppniseftirlitsins að það þyrfti ávallt að hafa samband við það áður en viðskipti ættu sér stað. Það tefði öll viðskipti og gangi einfaldlega ekki.

Guðmundur sagðist áður hafa fylgst með baráttu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Þorsteins Más Baldvinssonar gegn opinberum aðilum og sagðist ekki geta farið í einhverja tíu ára baráttu. 

„Það er ekki hægt að stoppa fyrirtæki í þróun út af einhverjum einum manni,“ sagði Guðmundur, sem upplifir persónulega herferð Samkeppniseftirlitsins gegn sér.

„Mig langaði í stríð við þá en skynsemin segir að það sé ekki vit í því. Það er betra að stíga til hliðar og halda áfram með lífið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.9.24 504,19 kr/kg
Þorskur, slægður 20.9.24 465,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.9.24 248,00 kr/kg
Ýsa, slægð 20.9.24 193,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 255,01 kr/kg
Ufsi, slægður 20.9.24 267,83 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 20.9.24 403,66 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.9.24 Ebbi AK 37 Þorskfisknet
Þorskur 1.399 kg
Ýsa 56 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 1.470 kg
20.9.24 Ísak AK 67 Þorskfisknet
Þorskur 2.899 kg
Skarkoli 23 kg
Ýsa 12 kg
Samtals 2.934 kg
20.9.24 Valþór EA 313 Handfæri
Þorskur 272 kg
Samtals 272 kg
20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri
Ufsi 208 kg
Þorskur 82 kg
Samtals 290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.9.24 504,19 kr/kg
Þorskur, slægður 20.9.24 465,37 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.9.24 248,00 kr/kg
Ýsa, slægð 20.9.24 193,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 255,01 kr/kg
Ufsi, slægður 20.9.24 267,83 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 20.9.24 403,66 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.9.24 Ebbi AK 37 Þorskfisknet
Þorskur 1.399 kg
Ýsa 56 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 1.470 kg
20.9.24 Ísak AK 67 Þorskfisknet
Þorskur 2.899 kg
Skarkoli 23 kg
Ýsa 12 kg
Samtals 2.934 kg
20.9.24 Valþór EA 313 Handfæri
Þorskur 272 kg
Samtals 272 kg
20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri
Ufsi 208 kg
Þorskur 82 kg
Samtals 290 kg

Skoða allar landanir »