Endurskoðun ráðgjafar beint til ráðherra

Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, segir eðlilegt að Hafrannsóknastofnun leggi …
Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, segir eðlilegt að Hafrannsóknastofnun leggi mat á það hvort ekki sé ástæða til þess að breyta útgefinni ráðgjöf í grásleppu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Atvinnuveganefnd hefur óskað eftir því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra beini því til Hafrannsóknastofnunar að athuga hvort ástæða sé til að endurmeta ráðgjöf stofnunarinnar vegna grásleppuveiða ársins á grundvelli þeirrar gagnrýni sem forsendur ráðgjafarinnar hefur hlotið. Kemur þetta fram í bréfi sem nefndin sendi ráðherra á mánudag.

Ráðgjöf stofnunarinnar hefur hlotið talsverða gagnrýni að undanförnu, meðal annars vegna þeirra gagna sem hún hefur lagt til grundvallar ráðgjöfinni.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir í samtali við 200 mílur að nefndin hafi tekið saman þau gögn sem komið hafa fram vegna málsins og hafi talið ástæðu til þess að láta skoða hvort ekki sé „eðlilegt að Hafrannsóknastofnun tæki þessa ráðgjöf til endurskoðunar með vísan til þessara gagna“.

„Við erum búin að senda það frá okkur og afrit til Hafrannsóknastofnunar. Við bíðum átekta áður en við förum að kalla Hafró til okkar og spyrjast fyrir um hvort þeir hafi skoðað þessi gögn,“ segir hún. „Það er sjálfsagður og eðlilegur hlutur, miðað við að fá fleiri gögn í hendurnar, koma með góða rýni á þau og rökstyðja hvers vegna ætti ekki að endurskoða ráðgjöfina,“ bætir Lilja Rafney við.

Þá telur hún ástæðu til þess að skoðaðir verði reiknistuðlar Hafrannsóknastofnunar, en þá hefur meðal annars Axel Helgason, fyrrverandi formaður Landssambands smábátaeigenda, gagnrýnt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 110,72 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,02 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.279 kg
Skarkoli 40 kg
Samtals 3.319 kg
25.4.24 Þrasi VE 20 Handfæri
Þorskur 1.084 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.085 kg
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 110,72 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,02 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.279 kg
Skarkoli 40 kg
Samtals 3.319 kg
25.4.24 Þrasi VE 20 Handfæri
Þorskur 1.084 kg
Karfi 1 kg
Samtals 1.085 kg
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg

Skoða allar landanir »