Þrátt fyrir leiðinlegt veður á miðunum tókst áhöfninni á Akurey að koma til hafnar í Reykjavík í morgun með 130 tonna afla. Skipið hefur stundað tveggja trolla veiðar að undanförnu og segir Magnús Kristjánsson, skipstjóri á Akurey, aflaaukninguna vel merkjanlega, að því er fram kemur í færslu á vef Brims.
„Ég er nokkuð ánægður með túrinn. Aflinn er um 130 tonn en aðstæður voru mjög erfiðar vegna veðurs,“ segir Magnús.
Akurey fór austur á Þverálshorn í leit að þorski en annars var skipið að veiðum í kantinum vestan við Halann auk þess sem skipverjar reyndu lítillega fyrir sér í Víkurálnum. „Það hafði verið þorskur á Þverálshorninu en sú veiði var að tregast um það leyti er við komum á svæðið. Í kantinum var þorskur og ufsi en það var einnig að draga úr þeirri veiði. Í Víkurálnum var mjög mikið af gullkarfa og við fengum um 35 tonn af gullkarfa án þess að hafa mikið fyrir því,“ útskýrir Magnús.
Yfirleitt var hægt að toga með tveimur trollum að sögn skipstjórans þegar hægt var að koma út veiðarfærum á annað borð.
„Það var ákafleg kaflaskipt veður í túrnum. Þetta var svona klippt og skorið. Annaðhvort var gott veður og veiðin var vandalaus eða þá að það var fárviðri og ekkert veiðiveður. Það má segja að veðrið hafi verið ýmist í ökkla eða eyra,“ segir Magnús.
Fram kemur í færslunni að nokkur reynsla sé komin á tveggja trolla veiðar Akureyjar. Magnús segir aflaaukninguna ótvíræða og á það við sérstaklega þegar aflinn er tregur. Sé afli góður sé aflaaukningin einnig vel merkjanleg.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Kristján HF 100 Lína | |
---|---|
Keila | 309 kg |
Þorskur | 268 kg |
Karfi | 111 kg |
Steinbítur | 38 kg |
Ufsi | 16 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 747 kg |
19.9.24 Særif SH 25 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.488 kg |
Keila | 367 kg |
Ýsa | 62 kg |
Steinbítur | 58 kg |
Karfi | 25 kg |
Samtals | 2.000 kg |
19.9.24 Elli P SU 206 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.183 kg |
Ýsa | 1.120 kg |
Keila | 155 kg |
Langa | 50 kg |
Steinbítur | 37 kg |
Samtals | 4.545 kg |