Þegar Guðmundur í Nesi RE-13, frystitogari Útgerðarfélags Reykjavíkur hf., var staddur á veiðum á Vestfjarðarmiðun í október í fyrra fékk skipverji gilskrók í hökuna eftir að spilmaður rak úrið á hægri hendi í rofa á hjálparspili. Við höggið beit skipverjinn gat á tunguna.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna atviksins. Er það mat nefndarinnar að um slys hafi verið að ræða.
Sagt er frá því í skýrslunni að áhöfnin hafi unnið að því að skipta frá tveimur trollum í eitt þegar slysið átti sér stað. „Nýlega var búið að draga stjórnborðs framgils aftur með hjálparspili (streðari) og lá hann í þilfarinu. Einn skipverjinn ætlaði að húkka gilsinu úr hjálparspilinu en í sömu andrá og hann stóð yfir gilsinum fór spilið á hífingu og gilskrókurinn lenti undir höku skipverjans. Þyrla LHG, sem var stödd á Ísafirði, sótti slasaða og flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík.“
Þegar úr rakst í rofa á hjálparspili fór spilið í hífingu með þeim afleiðingum að skipverji fékk gilskrók í hökuna.
mbl.is/Þorgeir Baldursson
Mæla með þrýstirofa
Við rannsókn kom fram að stjórnhandföngin fyrir fremri gils voru útbúin með „on/off“ rofa fyrir streðara sem „gerði það að verkum að samhliða því að framgilskrók væri slakað þá var hægt að hífa í hjálparspilið og draga þannig gilskrókinn aftur eftir skipinu.“ Þegar spilmaðurinn var búinn að slaka framgilsinum ætlaði hann að slaka byssuspilinu en við það rak hann úrið á hægri hendi ofan á rofann á hjálparspili sem þá fór á hífingu.
Þá fylgir skýrslunni sérstök ábending frá nefndinni og segir að nefndin telji „að í staðinn fyrir að nota „on/off“ rofa í handfanginu fyrir framgilsinn væri heppilegra að nota þrýstirofa sem halda þyrfti niðri á meðan hjálparspil er í notkun.“