Forsetahjónin fyrrverandi, Barack og Michelle Obama, fögnuðu 30 ára brúðkaupsafmæli mánudaginn 3. október. Hjónin fögnuðu perlubrúðkaupinu með því að birta myndir af sér á ströndinni.

Forsetafrúin óskaði manninum í lífi sínu til hamingju með brúðkaupsafmælið. „Þessi síðustu 30 ár hafa verið ævintýri og ég er þakklát fyrir að hafa haft þig mér við hlið,“ skrifaði frú Obama meðal annars á Instagram og sagðist elska manninn sinn.
Michelle Obama birti ekki bara gamla brúðkaupsmynd af þeim hjónum heldur líka nýjar myndir úr ferðalagi sem þau fóru í saman. Ekki er ólíklegt að myndirnar hafi verið teknar á Hawaii en hjónin fara oft þangað í frí.
Forsetinn fyrrverandi tísti í tilefni dagsins og birti myndir af sér og eiginkonu sinni úr sama fríi. Sagðist hann hafa unnið í lottóinu og hann gæti ekki óskað sér betri lífsförunautar.