Íslendingastuð í New York-borg

Stjörnur á ferð og flugi | 21. september 2023

Íslendingastuð í New York-borg

Það virðist vera heilmikið Íslendingastuð í New York-borg í Bandaríkjunum um þessar mundir.

Íslendingastuð í New York-borg

Stjörnur á ferð og flugi | 21. september 2023

Þau Ragnheiður Elín Árnadóttir, Eliza Reid, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Katrín …
Þau Ragnheiður Elín Árnadóttir, Eliza Reid, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson eru öll stödd í New York-borg. Samsett mynd

Það virðist vera heilmikið Íslendingastuð í New York-borg í Bandaríkjunum um þessar mundir.

Það virðist vera heilmikið Íslendingastuð í New York-borg í Bandaríkjunum um þessar mundir.

Rithöfundurinn Ragnar Jónasson og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, eru stödd í New York-borg og komu fram á viðburði í gær þar sem þau sögðu stútfullum sal í Scandinavia House frá bók sinni Reykjavík í gær. 

Þar hittu þau Elizu Reid forsetafrú sem kom fram í pallborði á Clinton heimsþinginu sem fór fram í borginni fyrr í vikunni. 

Uppselt var á viðburð Katrínar og Ragnars.
Uppselt var á viðburð Katrínar og Ragnars. Skjáskot/Instagram
Eliza, Katrín og Ragnar.
Eliza, Katrín og Ragnar. Skjáskot/Instagram

Óvæntur hittingur á veitingahúsi

Ragnar og Katrín voru þó ekki einu Íslendingarnir sem rákust á Elizu, en þær Ragneiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi innanríkisráðherra eru einnig staddar í New York borg. 

Þær fengu líka mynd af sér með Elizu og birti Ragnheiður Elín skemmtilega færslu um hittinginn á Facebook. 

mbl.is