Lil Nas X fékk undarlega gjöf í Svíþjóð

Stjörnur á ferð og flugi | 3. júlí 2023

Lil Nas X fékk undarlega gjöf í Svíþjóð

Tónlistarmaðurinn Lil Nas X hlaut heldur undarlega gjöf frá aðdáanda á tónleikum sínum í Stokkhólmi um helgina.

Lil Nas X fékk undarlega gjöf í Svíþjóð

Stjörnur á ferð og flugi | 3. júlí 2023

Lil Nas X
Lil Nas X AFP

Tónlistarmaðurinn Lil Nas X hlaut heldur undarlega gjöf frá aðdáanda á tónleikum sínum í Stokkhólmi um helgina.

Tónlistarmaðurinn Lil Nas X hlaut heldur undarlega gjöf frá aðdáanda á tónleikum sínum í Stokkhólmi um helgina.

Einn tónleikagestanna tók sig til og fleygði kynlífsleikfangi í líkingu við múffu til söngvarans á meðan hann flutti lag sitt Panini á evrópsku Lollapalooza–hátíðinni sem haldin var á laugaradag.

„Hver kastaði pjöllu upp á svið?“ spurði söngvarinn sem virtist bara hafa gaman af atvikinu. Lil Nas X lét múffuna þó ekki stöðva sig frekar og hélt ótrauður áfram með flutninginn.

Söngvarinn sem er best þekktur fyrir lagið Old Town Road er ekki eini tónlistarmaðurinn sem hefur verið að upplifa undarleg augnablik á tónleikum sínum upp á síðkastið.

Nýlega fékk söngkonan Pink, poka sem innihélt ösku látinnar móður eins tónleikagests og söngkonurnar Ava Max og Bebe Rexha urðu báðar fyrir óskemmtilegum atvikum á tónleikum sínum. 

Ava Max var slegin í andlitið á tónleikum sínum í Los Angeles og Bebe Rexha fékk farsíma í andlitið með þeim afleiðingum að hún féll á sviðið og hlaut glóðarauga og skurð.

mbl.is