Britain's Got Talent-dómarinn Amanda Holden gerði allt vitlaust á dögunum þegar hún birti bikinímyndir af sundlaugarbakkanum á Instagram.

Holden, sem er 52 ára, er stödd í páskafríi í Los Angeles þar sem hún hefur notið sólargeislanna til hins ýtrasta.
Það mætti halda að Holden sofi í formalíni enda er hún í fantaformi. Aðdáendur hennar virtust sérlega hrifnir af myndaröðinni og hafa hreinlega misst sig yfir unglegu útliti stjörnunnar.
„Að drekka í mig síðustu sólargeislana,“ skrifaði Holden við myndaröðina, en hún klæddist flottu rauðu bikiníi og var með töff sólgleraugu.