Níu íslenskir hönnuðir opnuðu sýningu í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

Hverjir voru hvar | 8. júní 2023

Níu íslenskir hönnuðir opnuðu sýningu í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

Sólin skein og gleðin var við völd í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, þegar sýningin Samband/Connection á 3 Days of Design var opnuð. Á sýningunni er að finna framúrskarandi vörur eftir níu íslenska hönnuði sem eiga það sameiginlegt að hafa hannað vörur sem eru þróaðar, framleiddar og seldar í Skandinavíu. Sýningin er framleidd af Epal í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Íslandsstofu og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn.

Níu íslenskir hönnuðir opnuðu sýningu í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn

Hverjir voru hvar | 8. júní 2023

Ljósmynd/Samsett

Sólin skein og gleðin var við völd í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, þegar sýningin Samband/Connection á 3 Days of Design var opnuð. Á sýningunni er að finna framúrskarandi vörur eftir níu íslenska hönnuði sem eiga það sameiginlegt að hafa hannað vörur sem eru þróaðar, framleiddar og seldar í Skandinavíu. Sýningin er framleidd af Epal í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Íslandsstofu og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn.

Sólin skein og gleðin var við völd í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, þegar sýningin Samband/Connection á 3 Days of Design var opnuð. Á sýningunni er að finna framúrskarandi vörur eftir níu íslenska hönnuði sem eiga það sameiginlegt að hafa hannað vörur sem eru þróaðar, framleiddar og seldar í Skandinavíu. Sýningin er framleidd af Epal í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Íslandsstofu og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn.

Við opnun sýningarinnar benti Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal, á að skandínavísk hönnun hafi lengi verið uppspretta innblásturs fyrir íslenska hönnuði en nú sé íslensk hönnun komin á það stig að vera sjálf uppspretta innblásturs og virkur hluti af skandinavísku hönnunarsenunni. Þá hafi samnorræn samvinna borið mikinn ávöxt undanfarin ár. 

Allir íslensku hönnuðirnir sem sýna hér í dag hafa hannað söluhæstu vörur í samvinnu við skandinavískt hönnunarhús. Fuglinn hans Sigurjóns Pálssonar hefur selst í 600.000 eintökum fyrir Normann Copenhagen, sem er umtalsvert meira en fólk er á Íslandi, og Notknot hnútapúðinn eftir Ragnheiði Ösp Sigurðardóttur er söluhæstur hjá Design House Stockholm,“ segir Eyjólfur. 

Skýr hönnunarstefna ber árangur

Eyjólfur benti einnig á að hönnun væri faggrein sem þurfi stuðning á fyrstu stigum til að blómstra í þann nýsköpunariðnað sem skapar mikil verðmæti og gagnast okkur öllum, og þá skipti skýr hönnunarstefna miklu máli: „Dönsk hönnun varð ekki að því öfluga vörumerki sem hún er í dag af sjálfu sér. Frægð hennar hefur dafnað út frá skipulagðri vinnu sem lögð var fram í skýrri hönnunarstefnu danskra yfirvalda. Stefnu sem hefur fært hönnun inn í almannarýmið, í opinberar byggingar, samkomustaði, í sjónvarp og kvikmyndir. Með markvissri vinnu hefur dönsk hönnun orðið að einni öflugustu og verðmætustu menningarafurð landsins.“

„Ég hef verið talsmaður og stoltur stuðningsmaður íslenskrar hönnunar í yfir fjóra áratugi. Og í fjóra áratugi hef ég barist fyrir því að íslensk yfirvöld setji sér álíka metnaðarfulla hönnunarstefnu, sem mun vernda, styðja og bæta íslenska hönnun, stuðla að nýsköpun, auka sjálfbærni og bæta líf okkar. Við þurfum líka að sýna það besta af íslenskri hönnun í opinberum byggingum og rýmum, sendiráðum og skólum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Við verðum að sýna og styðja við hönnun. Hönnun snýst ekki bara um fagurfræði. Hún snýst um að leysa vandamál, bæta virkni og skapa lífsgæði. Fyrir einstaklinginn og samfélagið í heild.“

Helga Hauksdóttir, Marta Jónsdóttir og Halla Helgadóttir.
Helga Hauksdóttir, Marta Jónsdóttir og Halla Helgadóttir. Ljósmynd/Hildur María
Mardís Malla Andersen, Júlía Andersen, Sigurjón Pálsson og Katla Leósdóttir.
Mardís Malla Andersen, Júlía Andersen, Sigurjón Pálsson og Katla Leósdóttir. Ljósmynd/Hildur María
María Kjarval við hinn klassíska Kjarvalsstól.
María Kjarval við hinn klassíska Kjarvalsstól. Ljósmynd/Hildur María
Birta Rós Brynjólfsdóttir hönnuður hins vinsæla Loftpúða frá FÓLK Reykjavík, …
Birta Rós Brynjólfsdóttir hönnuður hins vinsæla Loftpúða frá FÓLK Reykjavík, lét sig ekki vanta á opnunina. Ljósmynd/Hildur María
Helga Ólafsdóttir, May Kjaersgaard og Álfrún Pálsdóttir.
Helga Ólafsdóttir, May Kjaersgaard og Álfrún Pálsdóttir. Ljósmynd/Hildur María
Julie Quottrub Silbermann, Stefanía Kristín Bjarnadóttir, Kristjana Guðjohnsen og Kristín …
Julie Quottrub Silbermann, Stefanía Kristín Bjarnadóttir, Kristjana Guðjohnsen og Kristín Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Hildur María
Ýr Káradóttir, Anthony Bacigalupo og Helga Ólafsdóttir.
Ýr Káradóttir, Anthony Bacigalupo og Helga Ólafsdóttir. Ljósmynd/Hildur María
Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Danmörku, og Eyjólfur Pálsson, stofnandi …
Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Danmörku, og Eyjólfur Pálsson, stofnandi Epal. Ljósmynd/Hildur María
Dögg Guðmundsdóttir, Ragna Sara Jónsdóttir og Christine Blin.
Dögg Guðmundsdóttir, Ragna Sara Jónsdóttir og Christine Blin. Ljósmynd/Hildur María
Ljósmynd/Hildur María
Ljósmynd/Hildur María
mbl.is