Gummi kíró og Lína Birgitta laus við Krókhálsinn

Hverjir fluttu hvert | 7. nóvember 2023

Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, og Lína Birgitta Sigurðardóttir áhrifavaldur og viðskiptakona festu kaup á iðnaðarhúsnæði við Krókháls sumarið 2022. Planið var að opna vinnurými fyrir fólk í eigin rekstri en það varð þó ekki raunin því fyrr á þessu ári settu þau húsnæðið á sölu. Um er að ræða 258 fm pláss í húsi sem reist var 1990. 

Guðmundur Birkir Pálmason og Lína Birgitta Sigurðardóttir skáluðu í kampavíni …
Guðmundur Birkir Pálmason og Lína Birgitta Sigurðardóttir skáluðu í kampavíni þegar þau fengu húsnæðið við Krókháls 5 afhent sumarið 2022.

Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, og Lína Birgitta Sigurðardóttir áhrifavaldur og viðskiptakona festu kaup á iðnaðarhúsnæði við Krókháls sumarið 2022. Planið var að opna vinnurými fyrir fólk í eigin rekstri en það varð þó ekki raunin því fyrr á þessu ári settu þau húsnæðið á sölu. Um er að ræða 258 fm pláss í húsi sem reist var 1990. 

Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, og Lína Birgitta Sigurðardóttir áhrifavaldur og viðskiptakona festu kaup á iðnaðarhúsnæði við Krókháls sumarið 2022. Planið var að opna vinnurými fyrir fólk í eigin rekstri en það varð þó ekki raunin því fyrr á þessu ári settu þau húsnæðið á sölu. Um er að ræða 258 fm pláss í húsi sem reist var 1990. 

„Okk­ur langaði að skapa rými fyr­ir fólk sem er í eig­in rekstri og búa til skap­andi um­hverfi. En marg­ir sem vinna sjálf­stætt þekkja það vel að vera „ein­ir“ í vinn­unni en með Bus­iness Pad vilj­um við ein­mitt hafa um­hverfið opið og skap­andi sem ýtir und­ir það að fólk hitt­ir annað fólk. Leigj­end­um gefst tæki­færi á að leigja her­bergi und­ir sinn rekst­ur ásamt því að hafa af­not af fund­ar­rými, „lounge“ svæði og fleira,“ sagði Guðmund­ur í viðtali við Smart­land í júlí 2022.

LTF ehf. og Kírópraktor­stöð Reykja­vík­ur ehf. keyptu hús­næðið af Miðbúðin hf. og borguðu fyrir húsnæðið 67 milljónir. Samkvæmt fasteignaskrá fór afsal þó ekki fram. Nú hefur húsnæðið verið selt á 75 milljónir og er nýr eigandi Eignaskjól ehf. sem er í eigu Odds Ragnars Þórðarsonar og Ragnhildar Guðrúnar Pálsdóttur. 

mbl.is