Svo virðist sem hernaðaraðgerðir séu að hefjast í Júgóslavíu. Samkvæmt fréttum CNN sjónvarpsstöðvarinnar hafa íbúar Belgrad, höfuðborgar Serbíu, og Pristína, höfuðborgar Kosovo-héraðs, heyrt sprengingar á undanförnum mínútum. Þá hafa ítalskar fréttastofur greint frá því að loftárásir NATO séu hafnar.