Fundu bátinn en ekki drengina

Drengirnir heita Austin Stephanos og Perry Cohen. Þeir eru báðir …
Drengirnir heita Austin Stephanos og Perry Cohen. Þeir eru báðir fjórtán ára.

Bandaríska strandgæslan fann í kvöld bát tveggja unglingspilta sem hefur verið saknað undan ströndum Flórída í tvo daga. Báturinn var á hvolfi og mannlaus.

Báturinn fannst skammt undan landi og ekki langt frá þeim stað þaðan sem drengirnir sigldu á föstudag. Drengirnir heita Austin Stephanos og Perry Cohen. Þeir eru báðir fjórtán ára.

Flugvélar, þyrlur og hraðbátar hafa verið notaðir við leitina undanfarnar klukkustundir. 

Piltarnir keyptu bensíni á bátinn á föstudag og héldu út til veiða. Þeir hafa ekki sést síðan. 

Þrumuveður var síðdegis á föstudag sem talið er geta haft áhrif á ferð piltanna.

Frétt Reuters.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert