Sænska blaðakonan sem saknað hefur verið síðan á fimmtudag fannst ekki um borð í kafbátnum sem hífður var upp af botni Eyrarsunds í gærdag. Þetta segir Jens Møller, sem fer fyrir rannsókn Kaupmannahafnarlögreglunnar á málinu.
„Við fundum engan í bátnum, hvorki dauðan né lifandi,“ sagði Møller á blaðamannafundi nú fyrir skemmstu. Þá sagði hann einnig að sá grunaði í málinu, kafbátaeigandinn Peter Madsen, hefði gefið mismunandi skýringar varðandi það hvort hann hefði látið blaðakonuna í land á fimmtudag eður ei, en það sagðist hann hafa gert í fyrstu.
Tæknideild lögreglunnar vinnur nú við að rannsaka bátinn betur og lítur lögreglan á hann sem mögulegan vettvang glæps.
Møller sagði einnig frá því að lögreglan teldi nú að Madsen hefði sjálfur sökkt bátnum, samkvæmt umfjöllun Berlingske tidende.
„Það lítur út fyrir að kafbátnum hafi verið sökkt af ásettu ráði.“
Snemma í fyrradag hófst leit að kafbátnum, sem talið var að hefði horfið kvöldið áður í Eyrasundi. Maður sænsku blaðakonunnar hafði látið lögreglu vita af hvarfi hennar á fimmtudagskvöld.
Konan heitir Kim Wall og er þrítug. Hefur hún skrifað fyrir New York Times, Guardian og Vice Magazine, að því er BBC greindi frá í gær.
Kafbáturinn nefnist Nautilus og er einn stærsti heimasmíðaði kafbátur heims. Hann fannst í flóa í Køge, um 50 kílómetrum frá dönsku höfuðborginni, þar sem talið var að hann hefði sokkið.
Madsen var bjargað en hvorki tangur né tetur hefur fundist af konunni.