77 óbreyttir borgarar fórust

Reykur stígur upp til himins eftir sprengjuárás í austurhluta Ghota-héraðs …
Reykur stígur upp til himins eftir sprengjuárás í austurhluta Ghota-héraðs í dag. AFP

Að minnsti 77 óbreyttir borgarar fórust í sprengjuárás sem Sýrlandsher gerði á uppreisnarmenn í austurhluta Ghouta-héraðs, skammt frá höfuðborginni Damaskus.

Að sögn mannréttindasamtakanna Syrian Observatory for Human Rights voru 20 börn á meðal þeirra sem fórust árásinni.

Um 300 til viðbótar særðust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert