Kattareigandi í Bristol rak upp stór augu þegar hann kom að ketti sínum kúrandi í því sem virtist vera stærðarinnar pakkning af fíkniefnum.
Sú var raunin og hefur BBC eftir lögreglunni í Avon og Somerset að að kötturinn hafi burðast með pokann með fíkniefnunum inn á heimili sitt þar sem hann var búinn að koma sér vel fyrir þegar eigandinn fann hann. Þegar eigandinn áttaði sig á því hvað var í pokanum hafði hann umsvifalaust samband við lögreglu.
„Gleymum lögregluhundunum, byrjum að þjálfa ketti,“ segir í færslu lögreglunnar á Twitter.
Forget police dogs, we should start training up cats 🐱👮♂️Apparently the owner found this in the cat's bed, with the feline curled up next to it! https://t.co/0r8i8LMlQD
— Avon&Somerset Police (@ASPolice) September 17, 2018
Nánari efnagreining á fíkniefnunum á eftir að fara fram en ljóst er að um hörð efni er að ræða.