Umfjöllun sádi-arabískra fjölmiðla um hvarf sádi-arabíska rannsóknarblaðamannsins Jamal Khashoggis, sem tyrknesk yfirvöld telja hafa verið myrtan, er með töluvert öðru sniði en annars staðar. Samsæri Katara og ferðamenn í hárígræðsluferðum eru meðal þeirra kenninga sem þar þykja líklegar.
Khashoggi, sem var gagnrýninn á stjórnvöld í heimalandi sínu, kom á sádi-arabísku ræðismannsskrifstofuna í Tyrklandi 2. október til þess að verða sér úti um opinbera pappíra þannig að hann gæti gengið að eiga tyrkneska unnustu sína. Ekkert hefur spurst til hans síðan.
Tyrkneska lögreglan segir hann aldrei hafa komið þaðan út og hefur undanfarið verið að skoða 15 manna hóp Sádi-Araba sem voru á ræðismannsskrifstofunni á sama tíma og Khashoggi og komið höfðu til Istanbúl með tveimur einkaþotum fyrr þann sama dag.
Tyrkneskir fjölmiðlar kalla 15 menningana „aftökuteymið“, telja þá bera ábyrgð á hvarfi Khashoggis og segja búið að bera kennsl á þá sem liðsmenn leyniþjónustunnar.
New York Times hefur tekið saman umfjöllun nokkurra sádi-arabískra fjölmiðla um hvarf Khashoggis og ljóst að þar kveður við nokkuð annan tón en í alþjóðlegu pressunni.
Í frétt einnar sádi-arabískrar sjónvarpsstöðvar eru 15 menningarnir sagðir vera ferðamenn, ekki hryðjuverkamenn. Með fréttinni er birt mynd af einum mannanna, þar sem búið er að gera andlit hans óþekkjanlegt og fréttamaðurinn segir alvarlegri röddu:
„Tyrkneskir fjölmiðlar segja heilt leyniþjónustuteymi hafa komið á einkaþotum til landsins til að drepa einn mann. Hér er einn Sádanna sem Tyrkir hafa borið kennsl á. Í bakgrunni má sjá konu hans og dóttur. Á þessum degi hefði hvaða sádi-arabíski ferðamaður sem var verið ásakaður um að vera morðingi.“
Fréttastofan bendir því næst á að hundruð manna fari reglulega til Istanbúl vegna hárígræðsluaðgerða og birti með myndir af meintum tilræðismönnum ásamt myndum af öðrum þunnhærðum einstaklingum úr öryggismyndavélum með spurningunni um hvort það geri þá líka að grunuðum.
Annar sádi-arabískur fjölmiðill hefur sagt sönnunargögnin vera grunsamleg og að Tyrkir séu að dreifa falsfréttum. Mynd af einkaflugvélinni sem tilræðismennirnir eiga að hafa komið með hefur verið notuð til að renna stoðum undir þá kenningu. „Það sem er skrýtið við myndina er að það sést snjór efst á myndinni og núna er októbermánuður,“ sagði í einni fréttinni.
Þriðja kenningin og sú sem nýtur hvað mests fylgis í Sádi-Arabíu, er að um sé að ræða samsæri stjórnvalda í nágrannaríkinu Katar. Er herferð Katara sögð hafa haft áhrif og að alþjóðlegir fjölmiðlar hafi einfaldlega apað upp frásagnir þarlendra fjölmiðla. „Ekki eitt einasta fjölmiðlafyrirtæki í heiminum byggir upplýsingar sínar á þekktum heimildum,“ segir í frétt eins miðilsins. Þá birti dagblaðið al-Ryad, sem nýtur virðingar í heimalandinu, á forsíðu leiðara þessa efnis undir fyrirsögninni „Fjölmiðlar í Katar bregðast aftur í hvarfi Khashoggis.“
Hvað raunverulega gerðist er hins vegar enn á huldu.
Þeir Recep Tayyip Erdogan forseti Tyrklands og Salman Sádakonungur ræddu mál Khashoggi símleiðis í gær, m.a. mikilvægi þess að stofna sameiginlegan aðgerðahóp Tyrkja og Sádi-Araba í tengslum við rannsóknina.
Þá hafa stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi krafist þess að ljósi sé varpað á mál Khashoggi.