Tveir breskir hermenn særðust í gær í austurhluta Sýrlands þegar þeir urðu fyrir flugskeyti sem skotið var af vígamönnum hryðjuverkasamtakanna Ríki íslams.
Hermennirnir eru í Sýrlandi á vegum bandalagsins gegn Ríki íslams sem leitt hefur verið af Bandaríkjamönnum. Hermennirnir voru fluttir með þyrlu undir læknishendur.
Kúrdískur hermaður lést í árásinni sem átti sér stað í þorpinu Al-Shaafa sem er á svæði sem er eitt af fáum í Sýrlandi sem enn er á valdi hryðjuverkasamtakanna.