Tilkynnt var um að eldur hafi kviknað í endurvinnslustöð Metalco í bænum Gjøvik í Noregi klukkan korter í fimm að staðartíma. Lögreglan ákvað rétt fyrir klukkan níu að rýma nærliggjandi íbúðarhverfi og hafa um 200 íbúar verið látnir yfirgefa heimili sín, að því er segir í umfjöllun Dagbladet.
Ástæða rýmingarinnar er ekki vegna hættu á að eldurinn breiðist út, heldur vegna þess að reykurinn er talinn heilsuspillandi, auk þess sem erfiðlega gengur að slökkva eldinn. Slökkviliðið segist þó hafa stjórn á brunanum.
„Það er mikill svartur reykur á svæðinu. Sveitarfélagið hefur sent frá sér tilkynningu í smáskilaboðum til íbúa um að loka gluggum og öllum loftopum til þess að forðast reykinn,“ er haft eftir Arne Norevik, aðgerðastjóra lögreglunnar.
Enn er unnið á vettvangi og hefur hluti íbúa sem yfirgaf heimili sín sótt á hótel í bænum.
Endurvinnslustöðin vinnur meðal annars málma og raftæki. Stöðin er við hlið járnbrautarteina og hefur verið lokað fyrir lestarumferð vegna brunans.