„Þetta er sögulegur sigur fyrir flokkinn,“ segir Mary Lou McDonald, leiðtogi Sinn Féin, þjóðernissinnaðs félagshyggjuflokks, sem fékk flest atkvæði í írsku þingkosningunum um helgina. Flokkurinn hlaut 24,5% flygi, bætti við sig 14 þingsætum og er með 37 af 160 þingsætum neðri deildar þingsins.
„Ég gæti orðið næsti forsætisráðherra Írlands,“ sagði McDonald í samtali við írska fjölmiðla í gærkvöld.
Sitjandi forsætisráðherra, Leo Varadkar, og mið-hægriflokkur hans, Fianna Fáil, fékk 22,2% atkvæða en fær flesta þingmenn, 38 talsins, þar sem Sinn Féin var aðeins með 42 frambjóðendur í 39 kjördæmum. Kosningakerfið hefur einnig áhrif á fjölda þingsæta. Fianna Fáil tapar samt sem áður sex þingsætum frá síðustu kosningum fyrir fjórum árum.
Borgaraflokkurinn Fine Gael, sem nú situr í ríkisstjórn, fékk 20,9% atkvæða og 35 þingmenn kjörna. Alls fengu 10 flokkar þingmenn kjörna og segir McDonald vera hennar fyrsta val að mynda ríkisstjórn með einhverjum af minni flokkunum sjö.